Karlaraup er kvæði eftir Bjarna Thorarensen (f. 1786. d. 1841). Þetta kvæði var vinsælt m.a. í Bessastaðaskóla.
Fyrirsögn:
Karlaraup
Lagboði:
Lagið við kvæðið er upprunalega erlent eftir Weyse. Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi syngur þetta kvæði með einhverri varíasjón lagsins eftir Weyse. Skoða nánar. Lagboði: Amor bachus, kom er ned. Kvæði eftir Adam Oehensläger. Sjá einnig: https://ismus.is/tjodfraedi/hljodrit/1019207 og http://www.erlingmusic.dk/17781/Amor%20Bakkus
Höfundur:
Bjarni Thorarensen (f. 1786. d. 1841)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Ungur þótti ég með söng
yndi vekja í sveina glaumi,
en öllum nú finnst æfin löng,
þá í þeir heyri ::drynja gömlum rauni::
2. Ungir syngja ýtar ný
óðarlög með flugi og köfum,
en höldi glymja öldnum í
eintóm hljóð úr ::forfeðranna gröfum::
3. Ungur syng þú, mest sem mátt,
meðan hljóðin fagurt gjalla,
brátt því hætta í elli átt,
áður en lýðir ::söng þinn náhljóð kalla::