Ég veit eina brúði skína er brúðkaupskvæði varðveitt í tónlistarhandritinu Hymnodia Sacra. Kvæðið er í heildina 5 erindi.
Fyrirsögn:
Ég veit eina brúði skína
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag. Sjá BÞ bls. 346
Höfundur:
Ókunnur
Kvæði undir sama bragarhætti:
Næturgistingarsálmur - Upphaf: „Mig bar/ að byggðum seint á degi." Eftir Ketil Bjarnason (f. 1707. d. 1744)
Raunakvæði - Upphaf: „Ég veit/ eina baugalínu." Eftir Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. 1619. d. 1688). Brúðkaupskvæði
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Ég veit,
eina brúði skína
innra furðu bjart,
geðsreit gefna prýði fína
glóandi með skart
en leit
yzta klæðið svart.
Brúði býr þá sína
betur Jesús snart.
2. Það fljóð
þoldi mæðu langa,
þjáð af djöfuls heipt,
svo vóð
svívirðingu stranga,
saurindin í steypt;
guðs blóð
gat hana burtu keypt;
ginið satans svanga
sízt fjekk hana gleypt.