Fyrirsögn:
Sól skín á fossa
Lagboði:
Íslenskt þululag
Höfundur:
Ókunnur. Þjóðvísa
Kvæðagrein:
Þulur; Barnagælur; Dýravísur; Jólin (áramót); Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Á ekki við
Heimild/kvæðið á prenti:
Sól skín á fossa
segir hún Krossa.
Hvar á að tjalda?
segir hún Skjalda.
Suður við ána,
segir hún Grána.
Ég skal snjónum spyrna,
segir hún Hyrna.
Ég skal mjólka minna,
segir hún Dimma.
Ég skal standa innar,
segir hún Kinna.
Ég skal mjólka svo að freyði,
segir hún Reyður.
Mér þykir góður ruddi,
segir hann tuddi.
Ég skal éta sem ég þoli,
segir hann boli.
Ég skal éta sjálfur,
segir hann kálfur.
Ég þoli illa hungur,
segir vetrungur.