Enn fimmta kvæðiskorn og hljóðar sem eptir fer er vikivakakvæði varðveitt í Hrs. J. Sig. 257. 8.
Fyrirsögn:
Enn fimmta kvæðiskorn og hljóðar sem eptir fer
Lagboði:
Týndur. Tillaga að lagboða: Lag við Lákakvæði
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Vikivakakvæði; Vikivakar; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Lákakvæði - Upphaf: „Hér er sagan harmakauna." Eftir Guðmund Bergþórsson. Bragarhátturinn er ekki alveg sá sami en mjög líkur og lagið við kvæðið passar fyrir þetta vikivakakvæði
Heimild/kvæðið á prenti:
Íslenzkir vikivakar og vikivakakvæði, 1894, bls. 281-282.
Viðkvæði: Veiki mína bæti
verndarinn skær;
sannur guð hinn sæti
hann sé þér nær
1. „Hvar hópa þriggja hölda er,
ef hegða þeir með æru sér,
á millum þeirra mitt ég er."
Mælti herrann kær.
Sannur guð hinn sæti
hann sé þér nær.
2. Mig og þessa menja strönd,
er mér stígur við hægri hönd,
flytji guð á friðar lönd,
svo fylgjumst öll að vær.
Sannur guð hinn sæti
hann sé þér nær.
3. Eigðu kvæðið, auðgrund fín,
ef það geðjast huganum þín.
Herrann sá með heiðri skín
himna gefi þér, skær.
Sannur guð hinn sæti
hann sé þér nær.
4. Líst það eigi laglegt mér
ef lengra kvæði í dansinn ber,
því skal minnka Þundar hver,
en þú skalt eiga, mær.
Sannur guð hinn sæti
hann sé þér nær.