Séra Magnús er ein frægasta druslan, sungin í tvísöng. Lagboðinn er fenginn úr sálminum Herra, þér skal heiður og lotning veita.
Fyrirsögn:
Séra Magnús
Lagboði:
Íslenskt tvísöngslag. Sjá Bjarna Þorsteinsson 1906–1909, bls. 525–526. Lagið var upphaflega sungið við sálminn Herra, þér skal heiður og lotning veita. Lagið var einnig sungið við Eitt á enda ár vors lífs er runnið og Einar brúkar síðhempuna á sjóinn.
Höfundur:
Óvíst, en Magnús Stephensen konferensráð (f. 1762. d. 1833) bjó til danska útgáfu af texta og lagi.
Kvæðagrein:
Tvísöngvar
Kvæði undir sama bragarhætti:
Eitt á enda ár vors lífs er runnið - Áramótakvæði andlegt
Præsten Magnus satte op at ride - Eftir Magnús Stephensen konferensráð (f. 1762. d.1 833)
Útgáfur:
Séra Magnús settist upp á Skjóna,
sá var ekki líkur neinum dóna:
Hann var glaður,
hátt aktaður
höfðingsmaður.
Honum ber að þjóna.
Séra Magnús settist að í Nesi
Eins og Boli reyrður niður á hesi
Hann skal búa í kórnum kúa
og kusu sjúga.
Það skal lýðum lesið.
Heimildir:
Bjarni Þorsteinsson. (1906–1909). Íslenzk þjóðlög. Kaupmannahöfn: S.L. Møller.