Drottins hægri hönd er kvæði, sungið í tvísöng, sem sungið var við hestaskál þegar gestir kvöddu heimafólk og riðu úr garði.
Fyrirsögn:
Drottins hægri hönd
Lagboði:
Íslenskt tvísöngslag
Höfundur:
Ókunnur (?)
Kvæðagrein:
Brúðkaupskvæði; Tvísöngvar
Kvæði undir sama bragarhætti:
Rís upp drottni dýrð - Upphaf: „Rís upp drottni dýrð." Eftir síra Jón Þorsteinsson píslarvott (f. 1570. d. 1627)
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Drottins hægri hönd haldist yfir þér;
friður hins æðsta faðmi þig að sér!
Verndin vængja hans, veri' þinn hlífðarskans;
englar guðs vaki yfir' þér víst til sanns.
2. Jesú dauði dýr dreyri hans og sár
bezt þig blessi hýr bæði síð og ár!
Guðs góður andi gleði' og náð þjer sendi;
sál, líf og æra sje í drottins hendi.