Dagsvöku er enn nú endi er gamalt flökkuerindi en upprunalega var þetta sálmur. Upprunalega sálminn má m.a. finna í sálmabók Jóns Árnasonar biskups (f. 1665. d. 1743) frá árinu 1742 á bls. 538. Kvæðið er sungið í tvísöng
Fyrirsögn:
Dagsvöku er enn nú endi
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag; sálmalag
Höfundur:
Ókunnur(?)
Kvæðagrein:
Árstíðirnar; Tvísöngvar
Kvæði undir sama bragarhætti:
Óvíst
Heimild/kvæðið á prenti:
Dagsvöku er enn nú endi,
og nætursvefn fyrir hendi;
svo breytist allt í heimi hér
en himnesk gleði staðföst er
Gæti vor guð.