(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Jón Þorkelsson Vídalín (f. 1666. d. 1720) var biskup í Skálholti á árunum 1697 (vígður 1698) til 1720. Jón var lærdómsmaður mikill og skáld og fékkst einkum við það að yrkja kvæði á latínu. Jón Vídalín var barnabarn Arngríms lærða (f. 1568. d. 1648) og lærlingur síra Páls Björnssonar í Selárdal (f. 1621. d. 1706). Bræður Jóns voru þeir Þórður Þorkelsson Vídalín skólameistari Skálholtsskóla og Arngrímur Vídalín skólameistari í Nakskov í Danmörku.
Þekktasta ritverk Jóns Vídalín er vafalaust Vídalínspostilla sem var allra helsta guðfræðirit Íslendinga ásamt Passíusálmum Hallgríms Péturssonar. Vídalínspostillan var mest lesna bók landsins í tvær aldir, og enn um miðja 20. öld var hún lesin á einstaka bæjum. Þekktasti kafli Vídalínspostillunnar er vafalaust reiðilesturinn sem lesinn var fyrsta sunnudag á milli Nýársdags og Þrettándans og hefst hann svo:
🔥„Heiftin er eitt andskotans reiðarslag. Hún afmyndar alla mannsins limi og liði. Hún kveikir bál í augunum. Hún hleypir blóði í nasirnar, bólgu í kinnarnar, æði og stjórnleysi í tunguna, deyfu fyrir eyrun. Hún lætur manninn gnísta með tönnunum, fljúga með höndunum, æða með fótunum. Hún skekur og hristir allan líkamann og aflagar svo sem þegar hafið er uppblásið af stórviðri...“🔥
Jón andaðist árið 1720 í Biskupsbrekku, eins og frægt er, sem er á Uxahryggjum. Hafði hann verið á leið vestur að Staðarstað til þess að vera viðstaddur útför síra Þórðar Jónssonar sem var mágur hans. Jón veiktist á leiðinni en áður en hann kvaddi orti hann þessa frægu vísu sem er alkunn:
Herra guð í himnasal
haltu mér við trúna,
kvíði ég fyrir Kaldadal
kvölda tekur núna.
Kvæði eftir Jón Þorkelsson með þjóðlögum:
Þegar Halldór guðs boðorð braut - Upphaf: „Þegar Halldór guðs boðorð braut/ um blessaðar messustundir." Þessi vísa er svar Jóns Vídalíns við vísu eftir Halldór nokkurn sem var heimilismaður í Görðum. Jón var við messugjörð í Görðum þegar kirkjubekkur einn brotnar undan Halldóru nokkurri. Í kjölfarið tóku þeir Halldór og Jón að kveðast á og truflaði það messugjörðina.