(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Jón Ólafsson (f. 20. mars 1850. d. 11. júlí 1916). Hann var ritstjóri, alþingismaður og skáld. Jón Ólafsson var sonur séra Ólafs Indriðasonar á Kolfreyjustað (f. 1796. d. 1861) og hálfbróðir Páls Ólafssonar (f. 1827. d. 1905).
Ragnhildur er afkomandi Jóns Ólafssonar.
Kvæði eftir Jón Ólafsson ritstjóra:
Dans er hættur - Upphaf: „Dans er hættur/ höldum brott." Sjá jólin, jóladansa og vikivaka
Íslandsminni Vestur-Íslendinga - Upphaf: „Já, vér elskum Ísafoldu." Sjá ætttjarðarkvæði
Íslands minni - Upphaf: „Þér, sögu' og frelsis fóstran hvíta." Sjá ætttjarðarkvæði
Máninn hátt á himni skín - Upphaf: „Máninn hátt á himni skín." Sjá jólin, jóladansa og vikivaka.
Minni Íslands - Upphaf: „Vort fagra land með fagurgræna dali!" Sjá ætttjarðarkvæði
Þorrablóts-vísur 1870 - Upphaf: „Lífið er svo langt/ leiðist þeim, sem strangt." Sjá Þorrablótskvæði
Þorrablóts-vísur 1877 - Upphaf: „Í Babýlon hér útlægir vér erum." Lag: Vísur Íslendinga. Sjá Þorrablótskvæði