(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Jóhannes úr Kötlum (f. 4. nóvember 1899. d. 27. apríl 1972) var íslenskt skáld og rithöfundur og alþingismaður, fæddur á Goddastöðum í Laxárdal (Dalasýslu). Hálfs árs gamall fluttist hann með foreldrum sínum í Ljárskógssel en þar í grennd rennur á nokkur sem Fáskrúð heitir. Við ánna eru svonefndir Katlar – þar lék Jóhannes sér mikið í æsku – og að lokum kenndi hann sig við þá.
Hann var mikill sósíalisti og virkur í starfi hernámsandstæðinga í seinni heimsstyrjöldinni. Jóhannes var alþingismaður fyrir sósíalista árið 1941.
Kvæði eftir Jóhannes úr Kötlum með íslenskum þjóðlögum:
Hátíð fer að höndum ein - Upphaf: „Hátíð fer að höndum ein/ hana vér allir prýðum." Hann er höfundur að erindunum 2–5 en fyrsta erindið er þjóðvísa. Sjá jólin
Jólasveinakvæði - Upphaf: „Segja vil ég sögu/ af sveinunum þeim." Sjá jólin