Fyrirsögn:
Íslands lag
Lagboði:
Lag eftir Björgvin Guðmundsson
Höfundur:
Grím Thomsen (f. 1820.d. 1896)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Heyrið vella á heiðum hveri,
heyrið álftir syngja í veri:
:,: Íslands er það lag. :,:
Heyrið fljót á flúðum duna,
foss í klettaskorum bruna:
:,: Íslands er það lag. :,:
2. Eða fugl í eyjum kvaka,
undir klöpp og skútar taka:
:,: Íslands er það lag. :,:
Heyrið brim á björgum svarra,
bylja þjóta svipi snarra:
:,: Íslands er það lag. :,:
3. Og í sjálfs þín brjósti bundnar
blunda raddir náttúrunnar:
:,: Íslands eigið lag. :,:
Innst í þínum eigin barmi,
eins í gleði og eins í harmi
:,: ymur Íslands lag. :,: