Á Sprengisandi er ein frægasta hestavísan á Íslandi eftir Grím Thomsen (f. 1820. d. 1896). Þá hefur Þjóðdansafélag Reykjavíkur reglulega dansað þetta kvæði, bæði með vikivakaspori og skottísspori.
Fyrirsögn:
Á Sprengisandi
Lagboði:
Íslensk þjóðlög (a.m.k. 3)
Lag eftir Sigfús Einarsson. Ss. I, 96.
Höfundur:
Grímur Thomsen (f. 1820. d. 1896)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn,
rennur sól á bak við Arnarfell.
Hér á reiki' er margur óhreinn andinn
úr því fer að skyggja á jökulsvell.
:,:Drottinn leiði drösulinn minn,
drjúgur verður síðasti áfanginn.:,:
2. Þei þei, þei þei. Þaut í holti tófa,
þurran vill hún blóði væta góm,
eða líka einhver var að hóa
undarlega digrum karlaróm.
:,:Útilegumenn í Ódáðahraun
eru kannski' að smala fé á laun.:,:
3. Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn,
rökkrið er að síga' á Herðubreið.
Álfadrotting er að beisla gandinn,
ekki' er gott að verða' á hennar leið.
:,:Vænsta klárinn vildi' ég gefa til
að vera kominn ofan í Kiðagil.:,: