Fyrirsögn:
Sólheimasandur
Lagboði:
Þú bláfjalla geimur. Ss. I, 143.
Höfundur:
Grímur Thomsen (f. 1820.d. 1896)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Svo ríddu þá með mér á Sólheimasand.
Sjávar þar aldrei þagnar kliður,
en Jökulsá spinnur úr jakatoga band,
:,:og jökullinn í hafið gægist niður. :,:
2. Hann horfir á starf hinnar hraðstreymu ár
og hettuna missir af skalla,
en Jökulsá hana sinn lyppar í lár
:,: og loðið tætir reifi hvítra mjalla. :,:
3. En þó er sú strönd heldur þegjandalig,
þar heyrast ei kvikar raddir neinar,
því náttúran talar þar ein við sjálfa sig,
:,: En sveinar fæstir skilja hvað hún meinar. :,: