Fyrirsögn:
Skúlaskeið
Lagboði:
Til er lag, en óvíst hvort það sé erlent eða innlent.
Höfundur:
Grímur Thomsen (f. 1820. d. 1896)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Þeir eltu hann á átta hófahreinum
og aðra tvenna höfðu þeir til reiðar,
en Skúli gamli sat á Sörla einum,
svo að heldur þótti gott til veiðar.
2. Meðan allar voru götur greiðar
gekk ei sundur með þeim og ei saman;
en er tóku holtin við og heiðar,
heldur fór að kárna reiðar gaman.
3. Henti Sörli sig á harða stökki,
hvergi sinnti’ hann gjótum, hvergi grjóti,
óð svo fram í þykkum moldarmekki,
mylsnu hrauns og dökku sandaróti.
4. Þynnast bráðum gjörði fjanda flokkur,
fimm á Tröllahálsi klárar sprungu,
og í Víðikerum var ei nokkur
vel fær, nema Rauður Sveins í Tungu.
5. Ei var áð, og ekkert strá þeir fengu,
orðnir svangir jóar voru og mjóir,
en þótt miðlað væri mörum engu,
móðurinn þó og kraftar voru nógir.
6. Leiddist Skúla, leikinn vildi’ hann skakka,
ljóp við Ok úr söðli’ og fastar gyrti,
strauk hann Sörla um stinnan háls og makka
sté á bak, og svo á klárinn yrti:
7. „Sörli minn! Þig hef ég ungan alið,
og aldrei valið nema besta fóður;
nú er líf mitt þínum fótum falið,
forðaðu mér nú undan, klárinn góður!“
8. Það var eins og blessuð skepnan skildi
Skúla bæn, því háls og eyru’ hann reisti,
frísaði hart, – og þar með gammurinn gildi
glennti sig og fram á hraunið þeysti.
9. Á kostum Sörli fór í fyrsta sinni, –
furðar dverga hve í klungrum syngur,
aldrei hefir enn í manna minni
meira riðið nokkur Íslendingur.
10. Tíðara Sörli’, en sendlingur á leiru,
sinastælta bar í gljúfrum leggi,
glumruðu Skúla skeifurnar um eyru,
skóf af klettunum í hófa-hreggi.
11. Rann hann yfir urðir, eins og örin,
eða skjótur hvirfilbylur þjóti,
enn þá sjást á hellum hófaförin,
harðir fætur ruddu braut í grjóti.
12. Örðug fór að verða eftirreiðin,
allir hinir brátt úr sögu detta;
en aldrei urðu fleiri Skúla skeiðin,
skeið hans fyrsta’ og síðasta var þetta.
13. Hann forðaði Skúla undan fári þungu,
fjöri sjálfs sín hlífði klárinn miður; –
og svo með blóðga leggi, brostin lungu
á bökkum Hvítár féll hann dauður niður.
– –
14. Sörli er heygður Húsafells í túni,
hneggjar þar við stall með öllum tygjum,
krafsar hrauna salla, blakkurinn brúni —
bíður eftir vegum fjalla nýjum.