Borðsálmur er þorrablótskvæði eftir Björn Jónsson yngri (f. 1854. d. 1920), ritstjóra á Akureyri. Þetta kvæði var sungið á Þorrablóti á Akureyri 26. janúar árið 1884.
Fyrirsögn:
Borðsálmur
Lagboði:
Lagboðinn er fenginn úr Víkingabálki úr Friðþjófs sögu eftir Esaias Tegnér, í þýðingu Matthíasar Jochumssonar.
Höfundur:
Björn Jónsson yngri (f. 1854. d. 1920)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Hjer er átveizla stór,
Hjer er ólgandi bjór
Drukkinn ákaft í skrautlegum sal.
Hjer er hangikjöt heitt,
Hjer er hnakkaspil feitt,
Hjer er hákall og magála val.
2. Það er miðsvetrar blót,
Það á mjög gamla rót,
Og er meira enn unglinga brek.
Og vjer höldum það enn
Eins og heiðninnar menn
Til að herða vorn manndóm og þrek.
3. Vjer að seiðmanna sið
Unum sumbl og bjór við,
Og vjer súpum í botn hverja skál.
Eptir hanigkjöts át
Skal þó hafa þess gát
Vel að hugsa' um vor framfara mál.
4. Nú vjer heitum á Þór,
Sem var hraustur og stór,
Og sem hrímþursum grandaði bezt,
Svo hann, fremstur í þraut,
Ryðji fjelags vors braut,
Og það framförum nái sem mest.