(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Björn Jónsson yngri (f. 24. maí 1854. d. 11. janúar 1920) var ritstjóri á Akureyri.
Kvæði eftir Björn Jónsson yngri:
Borðsálmur - Upphaf: „Hjer er átveizla stór,/ Hjer er ólgandi bjór". Lagboðinn er fenginn úr Víkingabálki Friðþjófs sögu eftir Esaisas Tegnér, í þýðingu Matthíasar Jochumssonar. Þetta kvæði var sungið á Þorrablótinu á Akureyri 26. janúar árið 1884. Sjá Þorrablótskvæði
Þorra heilsað á þorrablóti 1894 - Upphaf: „Lengjast enn dagar,/ lifna þá drengir." Sjá Þorrablótskvæði