Íslands minni er ættjarðarkvæði eftir Bjarna Thorarensen (f. 1786. d. 1841). Þetta kvæði var vinsælt m.a. í Bessastaðaskóla. Lagið er breski þjóðsöngurinn
Fyrirsögn:
Íslands minni
Ísland
Lagboði:
God save the king. Ss. I, 23.
Höfundur:
Bjarni Thorarensen (f. 1786. d. 1841)
Kvæðagrein:
Ættjarðarkvæði; Skólasöngvar
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Eldgamla Ísafold,
ástkæra fósturmold,
Fjallkonan fríð!
mögum þín muntu kær
meðan lönd gyrðir sær
og guma girnist mær,
gljár sól á hlíð.
2. Hafnar úr gufu hér
heim allir girnumst vér
þig þekka að sjá.
Glepur oss glaumurinn,
ginnir oss sollurinn,
hlær að oss heimskinginn
Hafnarslóð á.
3. Leiðist oss fjalllaust frón,
fær oss oft heilsutjón
þokuloft léð.
Svipljótt land sýnist mér
sífellt að vera hér,
sem neflaus ásýnd er,
augnalaus með.
4. Öðruvís er að sjá
á þér hvítfaldinn há
heiðhimin við,
eða þær kristals ár
á hvörjar sólin gljár,
og heiðar himin-blár
há-jökla rið.
5. Eldgamla Ísafold,
ástkæra fósturmold,
Fjallkonan fríð!
ágætust auðnan þér
upplyfti, biðjum vér,
meðan að uppi er
öll heimsins tíð!