Jarðneska þrenningin er kvæði eftir Bjarna Thorarensen (f. 1786. d. 1841). Þetta kvæði var vinsælt m.a. í Bessastaðaskóla.
Fyrirsögn:
Jarðneska þrenningin
Lagboði:
Íslensk þjóðlög
Höfundur:
Bjarni Thorarensen (f. 1786. d. 1841)
Kvæðagrein:
Skólasöngvar
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Mörður, ýta allra
öfund kvalinn mest,
einatt kveinar og kallar:
„klækja er öfund verst!"
Sú til þessa orsök er:
Maðurinn glæpsins engum ann
utan sjálfum sér.
2. Gráni grenjar og dæsir,
gjöld ef heimtast í
óframfærðu og æsir
aðra móti því;
ei þó vill hann sjálfur sjá
í tíund nema tólg og ull,
tvær hann kirkjur á.
3. Skjálgur af skuldunautum
skinn og holdið flær
og að þeirra þrautum
þar á ofan hlær.
Þjófum líknar opt þó ann:
„allir þurfum vægðar vér"
við þá segir hann.
4. Þessi jarðar þrenning,
þú samt vita skalt,
undir eins og eining;
Arimans ei valt
stóll þrífættur þannig stár.
Einingin er eigingirnd,
en persónur þrjár.