Fyrirsögn:
Eyjafjallajökull
Lagboði:
Lag eftir C. M. v. Weber. Ss. I, 112.
Höfundur:
Bjarni Thorarensen (f. 1786. d. 1841)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
Tindafjöll skjálfa en titrar jörð,
tindrar um fagrahvels boga,
snjósteinninn bráðnar, en björg klofna hörð,
brýst þar fram mökkur um hárlausan svörð
og lýstur upp gullrauðum loga.
Hver þar svo brenni mjög, – ef þú spyrð að.
Eyjafjalla skallinn gamli‘ er það.