Kóngssona kvæði hefur vanalega verið flokkað sem íslenskur sagnadans en þó hafa verið vangaveltur um hvort kvæðið sé sagnadans yfir höfuð. Kvæðið er þýtt úr dönsku safni skemmtisagna sem kom út í Danmörku árið 1625.
ÍFk númer:
ÍFk 102
VÓ númer:
VÓ 101
TSB númer:
Varðveisla á Ísl:
Fyrirsögn á íslensku:
Kóngssona kvæði
Fyrirsagnir á öðrum málum:
Lagboði:
Lagboði stundum fenginn frá kvæðinu Hallur á Breiðavaði eftir síra Stefán Ólafsson í vallanesi (f. 1619. d. 1688)
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Útgáfur:
Efni kvæðis:
Uppruni og aldur kvæðisins:
Meðhöndlun kvæðisins í tímans rás:
Athugasemd:
1. Kóngurinn átti synina þrjá,
– alvara í gamni –
sjúkur bjóst að falla frá.
– það var nærri sanni.
2. Heimti hann til sín alla senn:
– alvara í gamni –
„Eg vil gera mitt testament.
– það var nærri sanni.
3. Sá skal stýra ríkjum hér
– alvara í gamni –
latastur sem allra er."
– það var nærri sanni.
4. Svaraði einn af sonum hans:
– alvara í gamni –
„Mér skipst hefur sá veldiskrans.
– það var nærri sanni.
5. Því letin er so meðfædd mér
– alvara í gamni –
þegar til svefns og hvíldar fer
– það var nærri sanni.
6. þó mér drjúpi í augu ögn
– alvara í gamni –
ligg eg kyrr í þánka og þögn,
– það var nærri sanni.
7. og þó eg missti heyrn og sýn
– alvara í gamni –
hræri eg aldrei hendur mín."
– það var nærri sanni.
8. Annar sonurinn svaraði þá:
– alvara í gamni –
„Ríkið eg með réttu á.
– það var nærri sanni.
9. Letin er mér hjarta kær
– alvara í gamni –
þó eg sitji eldi nær,
– það var nærri sanni.
10. þó loginn brenni hæl eða tá
– alvara í gamni –
aldrei vík eg fæti frá."
– það var nærri sanni.
11. Þriðji svarar og sór við trú:
– alvara í gamni –
„Faðir minn gaf mér ríkið nú.
– það var nærri sanni.
12. Letin er so við mig föst
– alvara í gamni –
þó snara lögð sé mér um hóst
– það var nærri sanni.
13. og þó eg hafi í hendi kníf
– alvara í gamni –
frelsa eg ekki sjálfs míns líf.
– það var nærri sanni.
14. Fyrr er upp í gálga heng
– alvara í gamni –
en eg bregði hnífi á streng."
– það var nærri sanni.
15. Lata kalla eg þessa þrjá,
– alvara í gamni –
málahlut þann margur á.
– það var nærri sanni.
16. Sá sem umflýr ærlegt starf
– alvara í gamni –
sult og armóð tekur í arf.
– það var nærri sanni.
17. Soddan ríki og reginment,
– alvara í gamni –
er tilgangslítið testament.
– það var nærri sanni.