ÍFk númer:
ÍFk 68
VÓ númer:
VÓ 30
TSB númer:
Varðveisla á Ísl:
Fyrirsögn á íslensku:
Kvæði af Þorkeli og Margrétu
Fyrirsagnir á öðrum málum:
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag. Sjá Ásu kvæði
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Útgáfur:
Efni kvæðis:
Uppruni og aldur kvæðisins:
Meðhöndlun kvæðisins í tímans rás:
Athugasemd:
1. Þorkell ríður sig undir ey,
– far vel fley –
kaupir Margrétu og þenkir mey.
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
2. Kaupir hann Margrétu og flytur hana heim,
– far vel fley –
lítt var það til náða þeim.
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
3. Þorkell ríður sig kveðandi
– far vel fley –
en hans húsfrú syrgjandi.
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
4. Þorkell spurði Margrétu sín:
– far vel fley –
„Hvað syrgir þig, sætan mín?
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
5. Hvort þykir þér leiðin löng
– far vel fley –
eða veldur því söðulþröng?"
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
6. „Það má hvör með annarri vita,
– far vel fley –
ei mun hægt í söðli sitja.
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
7. Slái þér tjöldum yfir mig,
– far vel fley –
farið á skóg og skemmtið yður."
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
8. Þegar að sól á fjöllum rauð
– far vel fley –
Margrét þoldi sára nauð.
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
9. Þegar að sól á fjöllum sá
– far vel fley –
Margrét fæddi syni þrjá.
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
10. Þorkell spurði sveina sín:
– far vel fley –
„Hvörsu má Margrét kærastan mín?"
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
11. „Og so vel að hún má
– far vel fley –
hún hefur grætt sér syni þrjá."
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
12. „Hafi hún grætt mér syni þrjá
– far vel fley –
alla trúi eg eigi þá."
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
13. Þorkell spurði kæru sín:
– far vel fley –
„Hvör er faðir að börnum þín?"
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
14. „Ívar nefni eg ungan svein,
– far vel fley –
kom til mín þá eg var mey.
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
15. Ívar nefni eg riddara son,
– far vel fley –
oft hann til míns föðurs kom.
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
16. Hann gaf mér það góða gullskinn,
– far vel fley –
fyrir það fékk hann viljann sinn.
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
17. Hann gaf mér þá góða gullfest,
– far vel fley –
fyrir það fékk hann viljann mest.
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
18. Hann gaf mér það góða gullband,
– far vel fley –
slíkt kemur aldrei á vort land."
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
19. Þorkell spurði kærustu sín:
– far vel fley –
„Hvað viltu gjöra af börnum þín?"
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
20. „Eg skal grafa þau undir einn stein,
– far vel fley –
sjálf mun eg bera mín barnamein.
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
21. Ég skal grafa þau undir harðan klaka,
– far vel fley –
sjálf mun eg við mínum syndum taka."
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
22. „O nei, o nei, það skal ei,
– far vel fley –
vilji minn guð það verði ei.
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
23. Þú skalt gefa þeim góða gullskinn
– far vel fley –
en eg besta gangvera minn.
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
24. Þú skalt gefa þeim góða gullfest
– far vel fley –
en eg bæði söðul og hest.
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
25. Þú skalt gefa þeim góða gullband
– far vel fley –
en eg skjöld og gylltan brand.
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.
26. Þeir skulu vera í voru liði,
– far vel fley –
nefnast okkar systrasynir."
– Við Sikiley,
fögrum tjöldum slógu þeir undir Sámsey.