Bósa rímur eru rímur sem ortar eru á 16. öld. Þær eru 10 talsins og eru ortar úr þekktri fornaldarsögu, Bósa sögu og Herrauðs. Rímurnar og sagan eru þekkt fyrir að vera ansi klámfengnar en kynlífsathöfnum Bósa og bændadætra tveggja er ítarlega lýst. Rímurnar eru ekki varðveittar heilar, til að mynda er mansöngur 8. rímu ekki varðveittur heill.
Varðveisla
Aldur
Höfundur
Efni Bósa rímna
Mansöngvarnir
Mansöngva má finna í öllum rímum Bósa rímna. Í mansöng 3. rímu segir skáldið að rímnaskáldin séu skyldug til þess að yrkja mansöngva ef þeir fá blíðu frá kvenfólki. En í tilfelli höfundar Bósa rímna er sú ekki raunin og hann amast við kvennaleysi og segir t.d. að engin kona hafi sinnt honum um langa hríð (II, 4). Í mansöng fjórðu rímu kvaðst skáldið hefðu eitt sinn fengið ást frá konu (IV, 2). Í mansöng 5. rímu segir skáldið síðan að það tjóir ekkert að yrkja mansöng til kvenna þar sem „sá tekur harmur hjartað kvelja" (V, 1). Í þessum sama mansöng lýsir skáldið á mjög svo kostulegan hátt þegar hann étur epli Ofideusar og verður síðan undir álögum sem lýsir sér með kvennaleysi:
2. Ofideus fann eplið eitt á ungum tíma
það var samið með sárum galldri
sett og gjört með harma kjalldri.
3. Beit eg á og bergða eg af því bölvaða epli
hatar mig síðan hringa Nanna
hvern þann tíð er eg hitti svanna.
(V, 2-3).
Skáldið er greinilega kvalið af ástarsorg. Í mansöng VI. rímu lýsir skáldið því á mjög dramatískan hátt hversu mikið hann saknar kvenmannsfaðmsins. Í mansöng VII. rímu heimsækir skáldið hús og þar sitja fyrir Sorg, Þrá og Pína, þ.e. þessar tilfinningar eru persónugerðar í mansöngnum. Þessi smásaga í mansöng VII. rímu minnir um margt á mansöng í Áns rímum bogsveigis. Þar fer skáldið einnig inn í hús þar sem miklar raunir mæta honum (V, 5).
Mansöngur 8. rímu er merkilegur fyrir þær sakir að þar má finna raunarollu. Mansöngurinn er því miður ekki varðveittur heill en í raunarollunni getum við greint hvaða sögur skáldið þekkti til á meðan það lifði. Þessar sögur hafa líklega verið vinsælar á meðan skáldið var á dögum. Kapparnir sem skáldið nafngreinir eru: 1. Sörli, 2. Hagbarður, 3. Samsón (sjá Samsons kvæði), 4. Hringur og Tryggvi, 5. Reinall, 6. Göngu-Hrólfur, 7. Ýmon, 8. Príamus, 9. Philpo, 10. Sigurður fótur, 11. Paralopi, 12. Tristram, 13. Bievus, 14. Rémund, 15. Mírmant og 16. Rollant.
Annað
Til eru yngri Bósa rímur eftir Guðmund Bergþórsson.
Útgáfur
Umfjöllun
Heimildir
Bósa rímur
I. ríma - (lengd mansöngs: 3 erindi)
II. ríma - (lengd mansöngs: 5 erindi)
III. ríma - (lengd mansöngs: 5 erindi)
IV. ríma - (lengd mansöngs: 6 erindi)
V. ríma - (lengd mansöngs: 4 erindi)
VI. ríma - (lengd mansöngs: 6 erindi)
VII. ríma - (lengd mansöngs: 11 erindi)
VIII. ríma - (lengd mansöngs: 17 erindi (líklega 20 upphaflega), mansöngurinn ekki varðveittur heill --> raunarolla)
IX. ríma - (lengd mansöngs: 8 erindi)
X. ríma - (lengd mansöngs: 7 erindi)