Blávus rímur og Viktórs. Þetta eru rímur sem eru ortar úr riddarasögunni Viktors sögu og Blávus en þær eru frá 15. öld. Þessar rímur tengjast sögusviði Bósa rímna einnig.
Varðveisla
Aldur
Höfundur
Efni Blávus rímna og Viktórs
Mansöngvarnir
Mansöngvar Blávus rímna eru mjög stuttir og hnitmiðaðir. Spurningin er hvort það sé virkilega hægt að kalla þetta mansöngva. Í mansöng fyrstu rímu tekur skáldið fram að það vill yrkja til kvenna. Hann virðist ekki bera neinn kala til kvenfólks. Í mansöng 6. rímu segist skáldið munu vilja forðast mannfögnuð, þ.e. hann gengur „gleðinni frá." (VI, 1) Í mansöng síðustu rímu segist skáldið vilja yrkja til þegna og í öðru erindi nefnir hann Steingrím nokkurn: Þegnar bið eg að þessari vísu hlýði/ eg stunda meir á Steingríms villd/ en stuðla fall eður orða snilld.
Annað
Útgáfur
Umfjöllun
Heimildir
Blávus rímur og Viktórs
I. ríma - (lengd mansöngs: 3 erindi)
II. ríma - (lengd mansöngs: 1 erindi)
III. ríma - (lengd mansöngs: 1 erindi)
IV. ríma - (lengd mansöngs: 1 erindi)
V. ríma - (lengd mansöngs: 1 erindi)
VI. ríma - (lengd mansöngs: 3 erindi)
VII. ríma - (lengd mansöngs: 0 erindi)
VIII. ríma - (lengd mansöngs: 2 erindi)