Ríkust faldafoldin fróm er afmorskvæði varðveitt í tónlistarhandritinu Melódíu
Fyrirsögn:
Ríkust faldafoldin fróm
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag. Sjá Bjarna Þorsteinsson 1906–1909, bls. 243–244. Lag nr. 75 í tónlistarhandritinu Melódíu.
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Afmorskvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Óvíst
Útgáfur:
Bjarni Þorsteinsson 1906–1909, bls. 243–244.
Ríkust faldafoldin fróm,
fögur og hýr með kærleiks hátt,
leggðu yfir mig líknar dóm
og lifandi þinnar blíðu sátt.
Drjúgum gleður mig dagfar þitt,
dyggðin, ást og tiltal blítt,
eykur það minni elsku mátt.
Heimildir:
Bjarni Þorsteinsson. (1906–1909). Íslenzk þjóðlög. Kaupmannahöfn: S.L. Møller.