Ef hýrt upp kviknar hjartans stig er afmorskvæði varðveitt í tónlistarhandritinu Melódíu
Fyrirsögn:
Ef hýrt upp kviknar hjartans stig
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag. Sjá Bjarna Þorsteinsson 1906–1909, bls. 243. Lag nr. 74 í tónlistarhandritinu Melódíu.
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Afmorskvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Óvíst
Útgáfur:
Bjarni Þorsteinsson 1906–1909, bls. 243.
Ef hýrt upp kviknar hjartans stig,
hvað viltu þá segja við mig?
Ójá, ójá, elskulig,
ansa kært, ef viltu mig.
Heimildir:
Bjarni Þorsteinsson. (1906–1909). Íslenzk þjóðlög. Kaupmannahöfn: S.L. Møller.