Fyrirsögn:
Táta, Táta, teldu dætur þínar
Lagboði:
Íslenskt þululag
Höfundur:
Ókunnur. Þjóðkvæði
Kvæðagrein:
Þulur; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Á ekki við
Heimild/kvæðið á prenti:
Táta, Táta teldu dætur þínar.
Ein er í hvelju, tvær í búri borð að setja.
Þrjár í eldhúsi graut að gera.
Fjórar í fjósi flór að moka.
Fimm á fjalli fífil að grafa.
Sex á sandi, sjö á landi.
Átta í eyjum eld að kynda.
Níu á nesjum naut að geyma
Tíu á túni og tuttugu heima,
hundrað eru á húsabaki
og þó er ekki hálftalið liðið hennar Tátu.