Fyrirsögn:
Sat ég undir fiskihlaða
Lagboði:
Íslenskt þululag
Höfundur:
Ókunnur. Þjóðkvæði
Kvæðagrein:
Þulur; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Á ekki við
Heimild/kvæðið á prenti:
Sat ég undir fiskihlaða
föður míns og móður,
átti ég að gæta
bús og barna
svíns og sauða.
Menn komu að mér
ráku staf í hnakka mér,
gjörðu mér svo mikinn skaða
löggðu eld í bóndans hlaða;
hlaðinn tók að brenna,
ég fór að renna
allt upp undir lönd,
allt upp undir biskups lönd.
Biskup átti valið bú,
gaf mér bæði uxa og kú,
uxinn tók að vaxa
en kýrin að mjólka.
Sankti María gaf mér sauð
síðan lá hún steindauð,
önnur gaf mér Freyja,
sú kunni ekki að deyja.