Fagur fiskur í sjó er gömul þula og ljóðaleikur. Hún er enn þekkt um allt land.
Fyrirsögn:
Fagur fiskur í sjó
Lagboði:
Íslenskt þululag
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Barnagælur; Dýravísur; Þulur; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Á ekki við
Heimild/kvæðið á prenti:
Fagur fiskur í sjó,
brettist upp á halanum
með rauða kúlu á maganum.
Vanda, banda,
gættu þinna handa.
Vingur, slingur,
vara þína fingur.
Fetta, bretta,
svo skal högg á hendi detta.