Fyrirsögn:
Þorrablótskvæði 1910
Lagboði:
Íslensk þjóðlög (4), þau sömu og notuð eru við sagnadansa á borð við Kvæði af Ólafi liljurós, Kvæði af vallara systrabana o.fl.
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Þorrablótskvæði; Önnur danskvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Sjá sagnadansa, einkum Kvæði af Ólafi liljurós
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Hallar vetri, hækkar sól.
– Stígur dans vættafans –
Löngu eru liðin jól,
það líður æfi manns.
– Verðir standa annes við og óbyggðir,
verðir standa annes við og óbyggðir lands.
2. Þorri heilsar horskri þjóð
– Stígur dans vættafans –
Sjaldan eru ljúf hans ljóð
né léttstíg gangan hans.
– Verðir standa annes við og óbyggðir,
verðir standa annes við og óbyggðir lands.
3. Fögnum þorra þó í kvöld.
– Stígur dans vættafans –
Hann hefir mátt og mikil völd
og margt er liðið hans.
– Verðir standa annes við og óbyggðir,
verðir standa annes við og óbyggðir lands.
4. Nú eru hrunin hofin öll.
– Stígur dans vættafans –
En mörg eru holt og hraun og fjöll,
það hylst allt sjónum manns.
– Verðir standa annes við og óbyggðir,
verðir standa annes við og óbyggðir lands.
5. Óðinn framdi afrek mörg.
– Stígur dans vættafans –
En nú á hann hvorki hof né hörg
né hylli nokkurs manns.
– Verðir standa annes við og óbyggðir,
verðir standa annes við og óbyggðir lands.
6. Álfar byggja holt og hól.
– Stígur dans vættafans –
Á grænum, rauðum, gulum kjól
þeir ganga í brúðardans.
– Verðir standa annes við og óbyggðir,
verðir standa annes við og óbyggðir lands.
7. Dvergar stórum steinum í.
– Stígur dans vættafans –
Gera þeir að gulli blý
og gimstein kornin sands.
– Verðir standa annes við og óbyggðir,
verðir standa annes við og óbyggðir lands.
8. Hamratröllin hrikastór
– Stígur dans vættafans –
flýðu undan Ása-Þór
og einkum Mjölni hans.
– Verðir standa annes við og óbyggðir,
verðir standa annes við og óbyggðir lands.
9. Vertu ei þeysinn, Þorri minn,
– Stígur dans vættafans –
rjúfðu hvíta kuflinn þinn
með krafti sólgeislans.
– Verðir standa annes við og óbyggðir,
verðir standa annes við og óbyggðir lands.
10. Færðu hylli og heilbrigði.
– Stígur dans vættafans –
Blíðviðri og bjargræði,
þá bindum vér þér krans.
– Verðir standa annes við og óbyggðir,
verðir standa annes við og óbyggðir lands.