Minni þórs er þorrablótskvæði eftir Jón Sigurðsson frá Möðrudal á Fjöllum (?). Kvæðið var sungið á Þorrablóti á Akureyri 26. janúar árið 1884.
Fyrirsögn:
Minni Þórs
Lagboði:
Sænskt þjóðlag, það sama og við Goðmund á Glæsivöllum eftir Grím Thomsen (f. 1820. d. 1896)
Höfundur:
Jón Sigurðsson frá Möðrudal á Fjöllum
Kvæðagrein:
Þorrablótskvæði; Önnur danskvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Á Glæsivöllum - Upphaf: „Hjá Goðmundi á Glæsivöllum/ gleði býr í höll." Eftir Grím Thomsen (f. 1820. d. 1896)
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Bjór drakk hann fastar en firðar gátu veitt,
-Fjörið það var heitt, -
Hann saup út sín tíu, er sveinar tóku eitt,
Og svipurinn tindraði' af hreysti.
2. Og þá hann stóð upp með drykkjarhorn í hönd,
Hauður skalf og lönd.
„Drekkið þjer nú sveinar og deyfðar slítið bönd.
Og drekkið á meðan þið standið".
3. Kætumst og heitum nú fast á Þrumu-Þór,
-Þömbum ótæpt bjór,-
Vjer verðum þó að fara' á einn verulegan þjór,
Ef viljum vjer Ása-Þórs minnast.
4. Drekkum því allir til dýrðar gamla Þór,
-Drekkum norskan bjór,-
Kaldur var hann karlinn en karlmennskan var stór;
nú klingjum og drekkum hans minni.