Katrínarkvæði eftir Steingrím Thorsteinsson
Titill:
Lagboði:
Höfundur:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. ::Í vist á kóngsgarð komin
hún Katrín litla var::
Sem lýsti logskær stjarna
og langt af þernum bar.
2. ::Sem lýsti logskær stjarna
og langt af þernum bar::
þá kom hinn ungi kóngur
þar Katrín litla var.
3. ::Ef kýs þú Katrín litla
að koma og verða mín::
þér essið gráa gef ég
sem glæst með prýði skín.
4. ::Ei essið grátt ég girnist
sem gullin söðul ber::
þess unn þú eigindrottning
en æru griða mér.
5. ::Ef kýs þú Katrín litla
að koma og verða mín::
þér gullkórónu gef ég
sem glæst af prýði skín.
6. ::Ei gulliðdjásn ég girnist
sem glæsta prýði ber::
þess unn þú eigindrottning
en æru griða mér.
7. ::Ef kýs þú Katrín litla
svo kalt að synja mér::
í greipar gaddatunnu
þá grýta læt ég þér.
8. ::Í greipar gaddatunnu
þeir grýttu hringaþöll::
Og siklingssveinar veltu
þar svann um þveran völl.
9. ::Tvær dúfur liðu úr lofti
svo ljósar eins og snjár::
þá leist þar Katrín litla
í loft upp flugu þrjár.
(Þýðing úr sænsku eftir Steingrím Thorsteinsson)