Senn er komið sólarlag,
sést á norðurtindum,
líður á þennan dýrðardag,
drottinn stýri vindum.
Senn er komið sólarlag,
sést á norðurheiðum,
líður á þennan dýrðardag,
drottinn stýri leiðum.
___________________
Senn er komið sólarlag,
sendi oss drottinn friðinn,
og oss gefi annan dag
eftir þennan liðinn.
Senn er komið sólarlag,
sést á norðurfjöllum,
líður á þennan dýrðardag,
drottinn hjálpi oss öllum.
Senn er komið sólarlag,
sést á norðurheiði,
líður á þennan dýrðardag,
drottinn veginn greiði.
Senn er komið sólarlag,
sést á norðurtindi,
líður á þennan dýrðardag
drottinn gefi oss yndi.
Senn er komið sólarlag
sést á norðurhnjúkum,
líður á þennan dýrðardag,
drottinn hjálpi oss sjúkum.
Senn er komið sólarlag,
sést á norðursteinum,
líður á þennan dýrðardag,
drottinn hjálpi sveinum.
Senn er komið sólarlag,
sorgar hverfi tjóður.
Annist guð vorn allan hag
elskulegur og góður.