Þó að tíðin gerist grimm
gleði ei vantar forðan.
Virðum saman frægir fimm
félagar að norðan.
Gleði raskast. Vantar vín.
Verður brask að gera.
Ef að taska opnast mín
á þar flaska að vera.