1. Skála og syngja Skagfirðingar
skemmtun vanda og gera hitt.
Heyrið slyngir Húnvetningar
hér er landaglasið mitt.
2. Í glasinu er góður landi
gerður handa þér og mér.
Tengdapabbi tilvonandi
tek ég ofan fyrir þér.
3. Bregst ei þjóð, á Brúarvöllum,
bragarglóð sem aldrei dvín
því skagfirskt blóð er í oss öllum
sem elska fljóð og drekka vín.