Ljósið kemur langt og mjótt er afar þekkt þjóðvísa sem yfirleitt var sungin í tvísöng áður fyrr. Grýluvísan Hún er suðr'í hólunum var líka sungin með þessu tvísöngslagi
Fyrirsögn:
Ljósið kemur langt og mjótt; Kvæðalag í tvísöng
Lagboði:
Íslenskt tvísöngslag og fleiri íslensk þjóðlög. Sjá Bjarna Þorsteinsson 1906–1909, bls. 533. Lagið lærði Bjarni í Mýrasýslu. Lagið var einnig sungið við Halla kerling fetar fljótt og Grýluvísuna Hún er suðr'í hólunum. Fleiri lagboðar voru einnig notaðir við þessar vísur.
Höfundur:
Ókunnur; þjóðvísur; norðlenskur húsgangur
Kvæðagrein:
Tvísöngvar; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Hún er suðr'í hólunum - Upphaf: „Hún er suðr'í hólunum/ hefir gráa skýlu." Höfundur ókunnur. Sjá grýlukvæðin
Útgáfur:
1. Ljósið kemur langt og mjótt,
langt og mjótt, langt og mjótt.
Ljósið kemur langt og mjótt,
logar á fífustöngum.
2. Halla kerling fetar fljótt,
fetar fljótt, fetar fljótt.
Halla kerling fetar fljótt
framan eftir göngum.
3. Við skulum ekki hafa hátt,
hafa hátt, hafa hátt.
Við skulum ekki hafa hátt
hér er margt að ugga.
4. Eg hef heyrt í alla nátt,
alla nátt, alla nátt.
Eg hef heyrt í alla nátt
andardrátt á glugga.
Heimildir:
Bjarni Þorsteinsson. (1906–1909). Íslenzk þjóðlög. Kaupmannahöfn: S.L. Møller.