Suðurnesjamenn eftir Ólínu Andrésdóttur
Titill:
Lagboði:
Höfundur:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Sæmd er hverri þjóð
að eiga sægarpa enn.
Ekki var að spauga
með þá Útnesjamenn.
– Sagt hefur það verið
um Suðurnesjamenn,
fast þeir sóttu sjóinn
og sækja hann enn.
2. Unnur bauð þeim faðm sinn
svo ferleg og há:
kunnu þeir að beita hana
brögðum sínum þá.
– Sagt hefur það verið
um Suðurnesjamenn,
fast þeir sóttu sjóinn
og sækja hann enn.
3. Kunnu þeir að stýra
og styrk var þeirra mund:
bárum ristubyrðingar
ólífisund.
– Sagt hefur það verið
um Suðurnesjamenn,
fast þeir sóttu sjóinn
og sækja hann enn.
4. Ekki er að spauga
með íslenskt sjómannsblóð,
ólgandi sem hafið
og eldfjallaglóð.
– Sagt hefur það verið
um Suðurnesjamenn,
fast þeir sóttu sjóinn
og sækja hann enn.
5. Ásækið sem logi
og áræðið sem brim,
hræðist hvorki brotsjó
né bálviðra glym.
– Sagt hefur það verið
um Suðurnesjamenn,
fast þeir sóttu sjóinn
og sækja hann enn.
6. Gull að sækja í greipar
þeim geigvæna mar
ekki nema ofurmennum
ætlandi var.
– Sagt hefur það verið
um Suðurnesjamenn,
fast þeir sóttu sjóinn
og sækja hann enn.