Jólasálmur eða Í dag er glatt í döprum hjörtum eftir síra Valdimar Briem vígslubiskup (f. 1848. d. 1930). Valdimar var eitt besta sálmaskáld Íslendinga fyrr og síðar.
Fyrirsögn:
Jólasálmur
Lagboði:
Lag eftir Wolfgang Amadeus Mozart (f. 1756. d. 1791)
Höfundur:
Valdimar Briem (f. 1848. d. 1930)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Í dag er glatt í döprum hjörtum,
því drottins ljóma jól.
Í niðamyrkrum nætur svörtum
upp náðar rennur sól.
Er vetrar geisar stormur stríður,
þá stendur hjá oss friðarengill blíður,
og þegar ljósið dagsins dvín,
oss drottins birta kringum skín.
2. Oss öllum mikinn fögnuð flytur
sá friðarengill skær:
Sá guð, er hæst á himni situr,
er hér á jörðu oss nær;
sá guð, er ræður himni háum,
hann hvílir nú í dýrðarstalli lágum;
sá guð, er öll á himins hnoss,
var hold og jörð og býr með oss.
3. Guðs lýður, vertu ei lengur hræddur,
og lát af harmi og sorg:
Í dag er Kristur drottinn fæddur
í Davíðs helgu borg;
hann fjötrum reifa fast er vafinn,
í frelsi barna guðs svo þú sért hafinn;
hann þína tötra tók á sig,
að tign guðs dýrðar skrýði þig.
4. Á himni næturljósin ljóma
svo ljúft og stillt og rótt,
og unaðsraddir engla hljóma
þar uppi um helga nótt.
Ó, hvað mun dýrðin himins þýða?
Og hvað mun syngja englaraustin blíða?
Um dýrð guðs föður, frið á jörð
og föðurást á barnahjörð.
5. Ó, dýrð sé þér í hæstu hæðum,
er hingað komst á jörð!
Á meðan lifir líf í æðum,
þig lofar öll þín hjörð,
á meðan tungan má sig hræra,
á meðan hjartað nokkuð kann sig bæra,
hvert andartak, hvert æðarslag
guðs englar syngi dýrðarlag.