Fyrirsögn:
Björk
Lagboði:
Höfundur:
Steingrímur Thorsteinsson (f. 1831. d. 1913).
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Fífillinn - Upphaf: „Herskildi fór ég um blómanna byggð". Eftir Helga Hálfdanarson (f. 1826. d. 1894). Óvíst með lag. Lag varðveitt á Ísmús.
Þórarinn Öfjörð A - Upphaf: „Drynur und fjallsrótum, dimm eru ský”. Eftir Bjarna Thorarensen (f. 1786. d. 1841). Kvæðið hefur einnig fyrirsögnina Kötlukvísl. Sjá erfiljóð
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Björkin mín væna í vatninu blá
Á vormorgni fögrum þig speglast eg sá
Þá dögglitir fuglar á glitrandi grein
Gólu mót sól, er í austrinu skein, -
Þá blíða mig dagdrauma dreymdi.
2. Um sumarnótt væra, þá silfraði skóg
svífandi máni í lágnættis ró,
á náttgalahljóminn eg hlustaði rótt,
og hjarta mitt kyrrðist um þögula nótt,
hrygð minni hjá þér eg gleymdi.
3. Á hausti þú léðir mér hæli og skjól,
í hreti þá kólguský byrgðu fyr sól,
og laufblöð í storminum fuku um fold,
en faldurinn græni var hniginn að mold;
þá dauft var í dalina auða.
4. Nú skelfurðu, vetrar af hreggbyljum hrist,
og hver mun nú líta við barlausum kvist?
Það fölnar í dag, sem var fagurt í gær,
en frosnum á baðmi mitt vonarlauf grær,
þig ljúfasta lít eg í dauða.