(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Kristján Jónsson fjallaskáld (f. 20. júní 1842. d. 9. apríl 1869) var kennari og skáld, fæddur í Krossdal í Kelduhverfi. Hann fékk viðurnefnið fjallaskáld eftir að hann orti ljóðið Dettifoss og gaf út. Hann gekk í Latínuskólann, sagði sig úr honum árið 1868 og tók að sér barnakennslu í Vopnafirði. Þar drakk hann sig í hel eftir baráttu við alvarlegt þunglyndi og lést í pakkhúsi í bænum árið 1869. Það hús er nú varðveitt á Árbæjarsafni, heitir Kornhús.
Ljóð eftir Kristján fjallaskáld með lagboðum:
Dettifoss - Upphaf: „Þar sem aldrei á grjóti gráu"
Minni Íslands - Upphaf: „Feðra vorra fósturláð." Sjá ættjarðarkvæði
Minni Íslands - Upphaf: „Ísland, Ísland, ó, ættarland." Sjá ættjarðarkvæði
Minni Íslands - Upphaf: „Norður við heimskaut í svalköldum sævi." Sjá ættjarðarkvæði
Nú er frost á fróni - Upphaf: „Nú er frost á fróni/ frýs í æðum blóð." Sjá Þorrablótskvæði
Tárið - Upphaf: „Þú sæla heimsins svalalind."
Vorvísa 1866 - Upphaf: „Nú andar sunnan blíður blær".
Yfir kaldan eyðisand - Upphaf: „Yfir kaldan eyðisand/ einn um nótt ég sveima."