Fyrirsögn:
Vöggukvæði
Lagboði:
Íslensk þjóðlög, þau sömu og notuð voru við mörg grýlukvæði og barnagælur á borð við Andrésardiktur og Einn guð í hæðinni.
Lag eftir Emil Thoroddsen, barnabarn höfundar
Höfundur:
Jón Thoroddssen (f. 1818. d. 1868)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Litfríð og ljóshærð
og létt undir brún,
handsmá og hýreyg
og heitir Sigrún.
2. Viska með vexti
æ vaxi þér hjá,
veraldar vélráð
ei vinni þig á.
3. Svíkur hún seggi
og svæfir við glaum,
óvörum ýtir
í örlaga straum.
4. Veikur er viljinn
og veik eru börn,
alvaldur, alvaldur
æ sé þeim vörn.
5. Sofðu mín Sigrún
og sofðu nú rótt,
Guð faðir gefi
góða þér nótt.