Einn guð í hæðinni er eldgömul barnagæla frá lærdómsöld, líklega úr Austur-Skaftafellssýslu. Barnagælan er dragmælt, líkt og mörg gömul grýlukvæði og sagnadansar. Barnagælan hefur líklegast verið ort á árunum 1650 til 1750. Þjóðsaga er varðveitt við þessa barnagælu, um draug sem kveður við gluggann.
Fyrirsögn:
Einn guð í hæðinni
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Barnagælur; huldarmál og draugavísur; Sagnadansar; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Mörg grýlukvæði og sagnadansar
Heimild/kvæðið á prenti:
Útgáfa Ingunnar Bjarnadóttur (f. 1905. d. 1972) frá Einholti á Mýrum (A. Skaft):
1. Einn guð í hæðinni
huggarinn þinn
líknsamur hann huggi þig
litli ljúfur minn.
2. Líknsamur hann huggi þig
og linni þínum móð
græði þig það mildasta
meyjarinnar jóð.
3. Græði þig sú mildasta
meyjarinnar von
hann sem lá í jötunni
jómfrúarinnar son.
4. Sá sem lá í jötunni
með börnunum hann grét;
af móðurinnar mjólkinni
metta sig hann lét.
5. Af móðurinnar mjólkinni
mettaðist hann
borinn var í heiminn
bæði guð og mann.
6. Borinn var í heiminn
það blessaða ljós
himneska liljan
og hjartmanna rós.
7. Himneska liljan
og hjartmanna hnoss,
hann sem kom í heiminn
og hjálpaði oss.
8. Hann sem kom í heiminn
og hjálpaði þér
þú sem grætur sáran
með sorgfullt geð.
9. Þú sem grætur sáran
með sorgfulla kinn
líknsamur hann huggi þig
litli ljúfurinn.
____________________
Önnur útgáfa fengin úr bók:
1. EINN GUÐ í hæðinni
huggarinn þinn
líknsamur huggi þig
litli ljúfur minn.
2. Líknsamur huggi þig
og linni þínum móð
græði þig það mildasta
meyjarinnar jóð.
3. Græði þig sú mildasta
meyjarinnar von
sá sem lá í jötunni
jómfrúinnar son.
4. Sá sem lá í jötunni
veinaði og grét;
af móðurinnar mjólkinni
metta sig hann lét.
5. Af móðurinnar mjólkinni
mettaðist hann
borinn var í heiminn
bæði guð og mann.
6. Borinn var í heiminn
það blessaða ljós
himneska liljan
og hjartmanna rós.
7. Himneska liljan
og hjartmanna hnoss,
hann kom í heiminn
og hjálpaði oss.
8. Hann kom í heiminn
og hjálpaði þér
þú sem grætur sáran
og sorgfullt geð.
9. Þú sem grætur sáran
með sorgfulla kinn
líknsamur huggi þig
litli ljúfurinn.