Fyrirsögn:
Vorvísa 1854
Lagboði:
A.m.k. tvö lög, eitt erlent og eitt íslenskt
Höfundur:
Jón Thoroddsen (f. 1818. d. 1868)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
Vorið er komið og grundirnar gróa,
gilið og lækirnir fossa af brún.
Syngur í runni og senn kemur lóa,
svanur á tjarnir og þröstur í tún.
Nú tekur hýrna um hólma og sker,
hreiðrar sig blikinn og æðurinn fer.
Hæðirnar brosa og hlíðarnar dala,
hóar þar smalinn og rekur á ból.
Lömbin sér una um blómgaða bala,
börnin sér leika að skeljum á hól.