Fyrirsögn:
Sortnar þú ský
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag
Höfundur:
Jón Thoroddsen (f. 1818. d. 1868)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Meyjarmissir - Upphaf: „Björt mey og hrein/ eg unni ein." Eftir síra Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. 1619. d. 1688). Ástarljóð
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Sortnar þú ský!
suðrinu í
og síga brúnir lætur;
eitthvað að þér
eins og að mér
amar; ég sé, þú grætur.
2. Virðist þó greið
liggja þín leið
um ljósar himinbrautir;
en niðri hér
æ mæta mér
myrkur og vegaþrautir.
3. Hraðfara ský!
flýt þér og flý
frá þessum brautum harma;
jörðu því hver
of nærri er
oft hlýtur væta hvarma.