Sofðu unga ástin mín er barnagæla og vögguvísa eftir Jóhann Sigurjónsson (f. 1880. d. 1919).
Fyrirsögn:
Sofðu unga ástin mín
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag
Höfundur:
Jóhann Sigurjónsson (f. 1880. d. 1919)
Kvæðagrein:
Barnagælur
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Sofðu, unga ástin mín,
– úti regnið grætur.
Mamma geymir gullin þín,
gamla leggi og völuskrín.
Við skulum ekki vaka um dimmar nætur.
2. Það er margt sem myrkrið veit,
– minn er hugur þungur.
Oft ég svarta sandinn leit
svíða grænan engireit.
Í jöklinum hljóða dauðadjúpar sprungur.
3. Sofðu lengi, sofðu rótt,
seint mun best að vakna.
Mæðan kenna mun þér fljótt,
meðan hallar degi skjótt,
að mennirnir elska, missa, gráta og sakna.