(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Hinrik Biering Þorláksson (f. 7. október 1873. d. 13. desember 1956) var fæddur í Melshúsum í Reykjavík. Hann var prýðilega hagmæltur, orti mörg ljóð að annarra manna beiðni. Hann hugðist ganga menntaveginn (í Lærða skólann) en faðir hans lést og þar með loku skotið fyrir frekari skólagöngu hans. Harmaði hann það alla sína daga. Laust eftir tvítugsaldur fluttist Hinrik vestur til Flateyrar í atvinnuleit og bjó hann þar til dánardags. Var hann þar gríðarlega vinsæll hagyrðingur og orti sífellt á mannamótum og stórhátíðum þar vestra.
Kvæði eftir Hinrik með íslenskum sönglögum:
Upp við fossinn - Upphaf: „Eitt sinn um þögla óttustund." Ástarljóð.