Þorravísur Herdísar Andrésdóttur (f. 1858. d. 1939). Þorravísur þessar hafa nokkra lagboða en nú á dögum er algengast að brúka Hólamannastemmu.
Fyrirsögn:
Þorravísur
Lagboði:
Hólamannastemma
Höfundur:
Herdís Andrésdóttir (f. 1858. d. 1939)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Þú ert að heilsa Þorri minn,
þýður og hýr á brána.
Við það hjá mér vakna finn
vors - og sumarþrána.
2. Oft varst þú með yglda brá,
illa jafnan séður.
Hverju er að þakka þá
þetta blessað veður?
3. Þú hefur gleymt þín gödduð spor
greiptu líf í dróma.
Þig hefur dreymt þú værir vor
vafið sólarljóma.
4. Hættu köldum hríðarglaum,
hættu slysum valda.
En láttu þig þennan dýrðardraum
dreyma um aldir alda.