Minni Íslands eða Þú gamla mæra móðurgrund er þorrablótskvæði og ættjarðarkvæði eftir Hannes S. Blöndal (f. 1863. d. 1932). Lagboði: Þú söguríka Svíabyggð eftir Otto Lindblad. Þetta kvæði var sungið á Þorrablótinu á Akureyri 26. janúar árið 1884.
Fyrirsagnir:
Minni Íslands
Þú gamla mæra móðurgrund
Lagboði:
Lagið er sænskt, það sama og við Þú söguríkja Svíabyggð eftir Otto Lindblad. Ss. I, 147
Höfundur:
Hannes S. Blöndal (f. 1863. d. 1932)
Kvæðagrein:
Þorrablótskvæði; Ættjarðarkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Þú gamla mæra móðurgrund
Vér minnumst þín á gleðistund,
Þú kynsælt kappaland,
Sem fannahjálm á höfði ber
Og heitan eld í brjósti þér,
Úr silfurskærum elfum er
Þitt ítra mittisband.
2. Þú móðurmold, vér minnumst þín,
Á meðan Drottins röðull skín
Á hvíta jökulkinn.
Að vinna allt, sem orkum vér
Vort ættarland til heiðurs þér,
Það fagra takmark setji sér
Hver sannur mögur þinn.