Fyrirsögn:
Ísland
Lagboði:
Fjalladrottning. Ss. I, 31.
Höfundur:
Hallgrímur Jónsson (f. 1875. d. 1961)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Sólargyðja! Svelladís !
söguríka kappamóðir.
Blómum lögð og umgirt ís,
sss er hjá þér styrkur vís.
Meðan haf við hauður rís
hátign þinni krjúpa þjóðir.
Sólargyðja, svelladís!
Söguríka kappamóðir.
2. Fjalladrotning, feðragrund!
Frelsi þitt vér skulum styðja,
oss er ljúft við móðurmund
máttinn reyna hverja stund,
ofurkapp og karlmannslund
kveður þú í vaxna niðja.
Fjalladrotning, feðragrund !
Frelsi þitt vér skulum styðja.
3. Einkamóðir ennishá!
ísafold í jökulskrúða,
snæhreint skín þér bros á brá,
blika rósir kinnum á.
Fótskör þín er bára blá,
brjóst þín rök af daggarúða.
Einkamóðir ennishá!
Ísafold í jökulskrúða.