Fyrirsögn:
Lækurinn
Lagboði:
Íslensk tvísöngsstemma
Höfundur:
Gísli Ólafsson (f. 1885. d. 1967) frá Eiríksstöðum í Svartárdal (A. Hún)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Alls konar ferskeytlur
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Ég er að horfa hugfanginn
í hlýjum sumarblænum
yfir litla lækinn minn
sem líður framhjá bænum.
2. Ó, hve marga æskustund
áður hér ég dvaldi,
saklaust barn með létta lund
og leggina mína taldi.
3. Bæ ég lítinn byggði þar
blómum utan skreytti.
Yfir tún og engjarnar
oft ég læknum veitti.
4. Nú er ekkert eins og fyr,
á öllu sé ég muninn.
Löngu týndir leggirnir
og litli bærinn hruninn.
5. Æskan hverfur, yndið dvín,
allt er líkt og draumur.
Áfram líður ævi mín
eins og lækjastraumur.
6. Meðan æðum yljar blóð
og andinn má sig hræra
vil ég syngja lítið ljóð
um lækinn silfurtæra.
7. Þegar ég er uppgefinn,
og eytt hef kröftum mínum
langar mig í síðsta sinn
sofna á bökkum þínum.