ÍFk númer:
VÓ númer:
TSB númer:
Varðveisla á Ísl:
Fyrirsögn á íslensku:
Kvæði af Gunnlaugi og Sigurði
Fyrirsagnir á öðrum málum:
Lagboði:
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Útgáfur:
Efni kvæðis:
Uppruni og aldur kvæðisins:
Meðhöndlun kvæðisins í tímans rás:
Athugasemd:
1. Sigurður lendir skipunum
við eina ey.
Gulli voru þau búin
með fagri fley.
– Svefn öngvan má eg sofa.
2. Sigurður biður Sigríðar
sem hann kann.
Hún vill ekki eiga þann
hinn væna mann.
3. Væn er hún Sigríður
systir þín.
Þó finnst annað fegra fljóð
á skipum mín.
4. En so svaraði hann Gunnlaugur
og varð við reiður:
Ég skal gefa þér hringa tólf
ef það er ei.
5. Sigurður gengur stuttan veg
til skipa sín.
Stattu upp, Sesselja,
systir mín.
6. Sesselja klæddi sig
í stakkinn blá.
Silfrinu temprar hún
þar utan á.
7. Sesselja klæddi sig
í safalaskinn.
So gengur hún í höllina inn
með meyjar fimm.
8. Sesselja settist undir
drykkjuborð.
Ekki mælti hún Sigríður
við hana orð.
9. Öllum þótti hún Sesselja
væn að sjá.
Þar lék henni Sigríði
öfundin á.
10. So lyktaði kvæðinu
fyrr og nær.
Sigríður átti barn
við borgarþræl.
– Svefn öngvan má eg sofa.